12.07.2012
Gott salat í saumaklúbbinn

3 kjúklingabringur
1 dl ólífuolía
3 msk sítrónusafi
3 msk kjúklingakrydd
salt og pipar
3 hvítlauksrif pressuð
1 avókadó
1 poki salat
100 gr parmesan
1 dós maísbaunir

Blandið saman í skál ólífuolíunni,hvítlauknum,sítrónusafanum og kryddinu og leggið kjúklinginn í löginn og látið liggja í 15 mínútur. Grillið kjúklingabringurnar í 15 mínútur eða steikið á pönnu en mér persónulega finnst þær alltaf betri grillaðar.
Skerið kjúklingabringurnar í bita og blandið öllu saman í skál og rífið parmesaninn yfir.
Ég keypti svo tilbúna mango-sósu í Krónunni til að hafa á salatið sem var ótrúlega góð.